Golf snýst fyrst og fremst um að hafa gaman — og ein leiðin í því er að búa til
skemmtileg mót, halda utan um tölfræði og spila með vinahópnum.
Ég hef alltaf haft gaman af að skipuleggja leiki og halda utan um þá. Við höfum til
dæmis notað Gamebook, sem var gríðarleg breyting og gerði leikinn skemmtilegri. Við
strákarnir spilum á mánudögum yfir sumarið, og ég hélt utan um allt í
monster-Excel-skjali — leiki sumarsins, sumarmótið, holukeppnina og ýmsa tölfræði eins
og hver hitti grínið. Ég hafði meira að segja reynt að ná tölfræði úr Golfbox
handvirkt, sem var ansi seinlegt.
Svo kynntist ég Claude, og það breytti öllu. Ég byrjaði á að koma sumarmóti okkar
strákanna á netið, fór svo að sækja gögnin úr Golfbox til að leika mér með, og þaðan út
í að setja upp lítil fjölskyldumót. Það er magnað hvað hægt er að gera.
Þetta er hobbí hjá mér — en líka svolítið tilraunaverkefni. Mig langaði að prófa hversu
langt ég kæmist með hjálp Claude, og kanna hvort ég, óreyndur forritari, gæti sett
saman og sett á netið afurðir sem aðrir gætu nýtt sér. Ekkert af þessu er gert í
hagnaðarskyni.