Af hverju Framför
Ástæðan fyrir því að ég valdi að styrkja Framför er einföld — ég greindist sjálfur með krabbamein í blöðruhálskirtli árið 2025, þá 56 ára gamall, en það má ætla að hátt í 300 greinist árlega með þetta algengasta krabbamein karla.
Fyrsta einkennið kom fram í janúar: blóð í sæði. Ég fór í skoðun og lét kanna málið, og staðfestingin kom um sumarið.
Í gegnum þetta hef ég komist að því að við karlmenn vitum ótrúlega lítið um allt sem er þarna niðri. Ég hef líka komist að því að við erum ekki sérstaklega góðir í að tala um svona hluti — en ég sá fljótt að mín besta lækning var einmitt að gera það: ræða þetta opinskátt og vera ekki feiminn með neitt. Viðurkenni þó að ég svaraði ekki einni manneskju sem spurði mig hvernig ég hefði eiginlega séð þetta í sæðinu!
Fyrir aðgerðina
Maður ræður ekki hvort maður fái krabbamein en maður ræður hvernig maður bregst við. Ég hef alltaf verið þokkalega duglegur að hreyfa mig en um leið og ég vissi í hvað stefndi, þá tók ég ræktina föstum tökum og kom mér í gott form.
Þá fékk ég ráðleggingu um að hitta sjúkraþjálfara, og það reyndist með því allra mikilvægasta sem ég gerði í þessu öllu saman. Við fórum yfir ferlið og mögulegar aukaverkanir, og ég fékk æfingar fyrir grindarbotninn — sem er alls ekki sjálfgefið að gera rétt. Það þarf að kenna manni það.
Ég og konan sögðum fjölskyldu og vinum frá þessu þegar staðfest greining lá fyrir. Það var alveg smá áfall fyrir fólk að heyra þetta, og maður skal ekki vanmeta líðan aðstandenda í svona ferli. Eitt er að vera að glíma við þetta sjálfur, vera inni á vellinum og spila — það er oft erfiðara að vera fyrir utan völlinn og horfa.
Held að allir í kringum mig hafi farið í blóðprufu og látið mæla PSA-gildið — og sem betur fer flestir í lagi, en því miður ekki allir! Það segir okkur körlunum hvað þetta er mikilvægt.
Aðgerðin
Ég fór í aðgerð í nóvember. Fyrstu vikurnar á eftir voru aumar, og ég mátti ekkert gera í tvo mánuði — ekki einu sinni ryksuga! Svo byrjaði ég rólega aftur í ræktinni.
Ég keypti mér líka risdælu, til að viðhalda blóðflæði í limnum. Ekkert við það sem er sérstaklega skemmtilegt, svo það sé sagt — en sjúkraþjálfarinn sagði mér ótrúlega áhugaverða sögu um tilganginn, um að „bleyta svampinn". Það er saga fyrir annan vettvang.
Margir sem fara í gegnum þetta glíma við þvagleka. Ég var hættur að leka eftir þrjá mánuði, og ég held að það skýrist ekki síst af því hvað ég var duglegur að hreyfa mig og gera æfingarnar. Þarna nýttist undirbúningurinn hjá sjúkraþjálfaranum svo sannarlega — hann kenndi mér mikið og undirbjó mig vel.
Eftirmeðferðin
Langflestir sem fara í aðgerð þurfa ekki meira, en í eftirskoðun kom í ljós að krabbameinið hafði náð út fyrir blöðruhálskirtilinn og PSA-gildin voru ekki nógu góð. Mér var boðið upp á eftirmeðferð — og það var ekki erfið ákvörðun að segja já við því.
Meðferðin er tvíþætt: hormónasprauta og geislar.
Sprautuna fékk ég í febrúar. Hún dugar í sex mánuði og keyrir testósterónið niður í núll — mjög skrítin tilfinning! Aukaverkanirnar minna dálítið á breytingaskeið kvenna — m.a. svitaköst og þreyta (þó engar skapsveiflur, sem betur fer).
Ég fann að ég skilaði bara um 70% í ræktinni, og til að forðast að dotta seinnipartinn tók ég upp á því að fara í göngutúra, fara í bása, eða jafnvel ryksuga — því mín hvíld er hreyfing. Mér var sagt að kynhvötin myndi minnka. Það var ekki alveg rétt — hún hvarf. Eða eins og kynlífsráðgjafinn á Landspítalanum orðaði það: maður fer tímabundið á „geldingarstig". En þetta mun allt saman koma til baka og ég mun verða betri eftir en áður.
Í júlí byrjaði ég svo í geislum, 33 skipti alla virka daga. Fyrstu vikurnar fann ég ekki fyrir neinu, en þreytan var farin að segja til sín undir lokin, og það var fínt að vita að það var ekki „af því bara". Í fyrsta lagi kostar það orku að gera við vef sem geislarnir skemma. Auk þess losa skemmdar frumur boðefni sem kallast cýtókín — sömu efni og líkaminn losar þegar maður er með flensu — og talið er að þessi bólgueftirverkun sé stór hluti af því hvers vegna geislaþreyta er svo lík flensuslappleika. Þetta hlóðst upp dag frá degi, og hormónasprautan bættist ofan á. Geislaþreyta er ekki það sama og venjuleg þreyta, og besta ráðið var ekki endilega svefn eða hvíld, heldur stuttir göngutúrar — sem reyndist mér vel.
Fyrir hvern tíma þurfti að drekka 700 ml af vatni, sem var undir lokin orðið hægara sagt en gert. Í upphafi hvers skiptis er svo tekin mynd til að kanna hvort þvagblaðran sé nógu full og ekki loft í þörmum. Stundum þurfti maður að fara fram og drekka aðeins meira — en það versta var þegar maður var sendur fram og átti að prumpa, en mátti alls ekki pissa! Enginn skilur hversu erfitt það er fyrr en maður stendur sjálfur og er að því sem næst míga á sig. Þetta var álíka þolraun og að reyna að hnerra með opin augun.
Sund og heitir pottar voru líka bannaðir allan tímann — en núna eru geislarnir búnir, og þetta gekk eins vel og ég þorði að vona. Og geggjað að komast loksins með barnabörnin í pottinn aftur!
Eftir hvíld í tvær vikur er ég nú byrjaður í ræktinni og gott að finna fyrir verðskulduðum harðsperrum. Næsta skref er blóðprufa í nóvember til að staðfesta að allt sé eins og á að vera.
Hugarfarið
Ég hef verið heppinn í þessu öllu saman. En kannski er þetta líka bara hvernig ég er — ég hef aldrei blótað þessu. Mér finnst ég heppinn að hafa verið greindur, og það er geggjað hvað hægt er að gera í dag. Ég er alveg viss um að ég muni deyja — bara ekki úr þessu. Ég hugsa bara um það sem er fram undan hverju sinni, ekki það sem gæti gerst. Ég hef ekkert googlað þetta. Ég spyr lækna og aðra sem vita, ef eitthvað liggur á mér.
Læknar og spítalinn
Allt upp á tíu og algjörlega frábært fólk. Mikið bakland og ef ég hef spurt um eitthvað eða þurft að tala við einhvern, þá hefur aldrei staðið á neinu, aldrei. Ferlið hefur tekið tíma en það er kerfið okkar, ekki fólkið.
Tryggingarnar
Ég var með sjúkdómatryggingu sem ég keypti fyrir nærri 30 árum — löngu áður en mér datt í hug að ég myndi nokkurn tímann þurfa á henni að halda. Ég vil hvetja alla til að huga að tryggingum í tíma, meðan heilsan er góð. Öll íslensku tryggingafélögin bjóða upp á sjúkdómatryggingar sem greiða bætur vegna ýmissa alvarlegra sjúkdóma.
Ég vann lengi sjálfur í tryggingageiranum og hringdi einu sinni í viðskiptavin sem hafði sagt upp líftryggingunni sinni, og spurði um ástæðuna. Svarið var einfalt: „Ég þurfti ekki á henni að halda!"
Stuðningsfélög
Ég hef skoðað þetta vel og metið stöðuna. Ég hef hingað til leitað annarra leiða — talað við mína vini og fjölskyldu, sem og lækna og sjúkraþjálfara. Mér líður vel með þetta verkefni, svolítið eins og þegar ég sleit krossband fyrir mörgum árum. Það tekur um ár að koma til baka.
Ég veit að stuðningsfélög gera frábært starf, og ég hvet alla í sömu sporum til að meta hvað hentar þeim best. Ég reikna fastlega með að nýta mér þetta sjálfur — en akkúrat núna er ég í „miðri lauginni".
Golfið
Ég set þetta verkefni stundum í samhengi við golf. Ég er í holukeppni núna, og eitt sem maður lærir í holukeppni er að láta andstæðinginn aldrei sjá að maður sé svekktur. Ég ætla ekki að næra þetta með svekki eða blóti — ekki eina sekúndu. Ég mun vinna þessar 18 holur. En ég mun líka tapa einhverjum holum — eins og þegar ég þurfti að fara í eftirmeðferðina. Maður hugsar bara um komandi högg. Ég hef ekki áhyggjur af vatninu á 15. flöt fyrr en ég kem þangað. Ég blóta ekki þessu brasi, ekki frekar en ég myndi blóta því að slá í bunker. Spurningin er bara: hvernig ætla ég að koma mér upp á flöt og ná sandsave? Ég einbeiti mér bara að því að klára hringinn — og vinna holukeppnina!
okkargolf
Ég hef verið að leika mér að því að búa til golf-app — úr því varð til okkargolf, verkfæri til að halda utan um skor, mót og forgjöf. Mig langaði að leyfa öðrum að nota það og vildi ekki rukka fyrir, en hef þá skoðun að allt sem er frítt sé vanmetið.
Í ljósi þess sem ég er að ganga í gegnum fannst mér tilvalið að tengja þetta við Framför, og skilyrða notkunina við frjálsan styrk til félagsins.
Fyrir þá sem hafa ekki áhuga á golfi en vilja samt taka þátt í söfnuninni er líka hægt að leggja inn frjálst framlag beint — sjá að neðan. Safnast hefur nú þegar 399.001 kr. — takk fyrir stuðninginn!
Sagan er ekki búin. Meira síðar.
Styrkjum Framför
Stuðningsfélag karla með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandenda þeirra. Frjáls framlög renna beint til Framfarar — hér eru bankaupplýsingarnar.
Bankaupplýsingar